1535
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1535 (MDXXXV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Prentsmiðjan á Hólum flytur með prentaranum Jóni Matthíassyni að Breiðabólsstað í Vesturhópi.
Fædd
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 18. janúar - Francisco Pizarro stofnaði Líma í Perú sem Ciudad de los Reyes.
- 10. mars - Fray Tomás de Berlanga uppgötvaði Galápagoseyjar.
- 29. mars - Go-Nara, var settur sem 105. keisari Japans.
- 10. maí - Hópur anabaptista, leiddur af prestinum Jacob van Geel, réðst inn í þinghús Amsterdam og reyndi að hrifsa völdin. Borgarsjóri borgarinnar, Pieter Colijns, var drepinn af uppreisnarmönnum.
- 1. júní - Karl 5. keisari gerði árás á Túnisborg. Fyrst réðst hann á flota Ottómana og eftir 2 mánuði hafði hann náð borginni og lágu 30.000 íbúar í valnum.
- 8. júní - Lübeck og Hansasambandið biðu ósigur fyrir Svíþjóð, Danmörku og bandamönnum þeirra við Borgundarhólm.
- 24. júní - Uppreisnin í Münster: Anabaptistaborgin Münster fellur.
- 3. júlí - Diego de Almagro hélt til Síle til landvinninga eftr að hafa sigrað Cuzco, höfuðbork Inka.
- 2. október - Jacques Cartier kom að eyju í Saint Lawrence-fljóti sem síðar varð borgin Montréal.
- 4. október - Fyrsta biblían var prentuð á ensku í Antwerpen.
- 1. nóvember - Ítalíustríðin: Eftir andlát Francesco II Sforza, hertoga Mílanó, gerðu báðir Frans 1. Frakkakonungur og Karl 5. keisari tilkall til Hertogadæmisins Mílanó. Deilan leiddi til stríðs milli Frakklands og rómverska ríkisins.
- Súleiman mikli hóf að reisa nýja veggi um Jerúsalem.
- Fyrsta bókin var prentuð á eistnesku.
Fædd
Dáin
- 6. júlí - Thomas More, enskur stjórnmálamaður, tekinn af lífi fyrir landráð (f. 1478).
- Kamāl ud-Dīn Behzād, persneskur myndlistarmaður.