1460
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1460 (MCDLX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafur Rögnvaldsson kom heim eftir að hafa tekið biskupsvígslu og tók við biskupsembætti á Hólum.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Torfi Jónsson í Klofa, sýslumaður og höfðingi (d. 1504).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Marcellus Skálholtsbiskup drukknaði við Svíþjóð í ársbyrjun.
- Þóra Finnsdóttir, príorinna í Reynistaðarklaustri (f. 1408).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 15. janúar - Píus 2. páfi lýsti yfir kristinni krossferð gegn Ottómanveldinu sem hafði tekið yfir Konstantínópel (árið 1453).
- 5. mars - Kristján 1. var kjörinn greifi af Holtsetalandi og hertogi af Slésvík og lýsti því þá yfir að héruðin skyldu ávallt fylgjast að.
- 4. apríl - Háskólinn í Basel í Sviss var stofnaður.
- 26. júní - Jarlinn af Warwick og Játvarður jarl af March (seinna Játvarður 4.) lentu með her á Englandi og tóku London.
- 10. júlí - Rósastríðin: Orrustan við Northampton. Hersveitir hertogans af York unnu sigur á konungsmönnum og Hinrik 6. konungur var tekinn höndum. Hann féllst á að gera Ríkharð hertoga að erfingja sínum en ekki Játvarð son sinn.
- 30. desember - Rósastríðin: Orrustan við Wakefield. Ríkharður hertogi af York féll þar og næstelsti sonur hans, jarlinn af Rutland, var tekinn af lífi eftir bardagann.
- Portúgalskir landkönnuðir komu til svæðis í Afríku þar sem nú er Sierra Leone.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Svante Nilsson Sture, ríkisstjóri Svíþjóðar (d. 1512).
- (Sennilega) Tristan da Cunha, portúgalskur landkönnuður (d. 1540).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 3. ágúst - Jakob 2. Skotakonungur (f. 1430).
- 13. nóvember - Hinrik sæfari, prins af Portúgal (f. 1394).
- 30. desember - Ríkharður hertogi af York (f. 1411).
- 31. desember - Játmundur jarl af Rutland, sonur Ríkharðs hertoga, líflátinn (f. 1443).