1381
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1381 (MCCCLXXXI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- 26. maí - Guttormur Ormsson, faðir Lofts Guttormssonar, var veginn í Snóksdal.
- Hrafn Bótólfsson kom til landsins og hafði verið veitt lögmannsembættið norðan og vestan.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 15. ágúst - Oddgeir Þorsteinsson, biskup í Skálholti.
- Brynjólfur Björnsson ríki á Stóru-Ökrum.
- Eiríkur auðgi Magnússon á Svalbarði.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 14. janúar - Hundrað ára stríðið: Thomas of Woodstock, hertoginn af Gloucester og sonur Játvarðs 3. konungs, endaði umsátur sitt um Nantes (hófst í nóvember árið áður).
- Apríl - Tímúr lagði undir sig Herat.
- 12. júní - 15. júní - Bændauppreisnin í Englandi 1381 átti sér stað. Uppreisnarmenn tóku m.a. af lífi erkibiskupinn af Kantaraborg og fjármálaráðherrann við Lundúnaturn. Ríkharður 2. Englandskonungur bældi niður uppreisnina og lét taka leiðtoga hennar af lífi.
- 7. júlí - Konungsríkið Portúgal og Konungsríkið Kastilía áttust við í sjóorrustu og lutu Portúgalir í lægra haldi.
- 8. ágúst - Lýðveldið Feneyjar og Lýðveldið Genúa skrifuðu undir friðarsamning í hinu þriggja ára Chioggia-stríði. Skilmálar voru hliðhollir Feneyingum.
- 25. ágúst - Jóhanna 1. Napólídrottning, lét af hendi Konungsríkið Napólí til Karls 3. hertoga Slavóníu, Dalmatíu og Króatíu.
- Borgarastyrjöld hófst í Hertogadæminu Litáen.
- Tímúr lagði Austur-Persíu undir sig.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Anna af Celje, Póllandsdrottning (d. 1416).
- Jóhann 1., hertogi af Bourbon (d. 1434).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 24. mars - Heilög Katrín frá Vadstena, sænskur dýrlingur.