Leikur
Leikur er afþreying sem getur verið annað hvort óskipulagður eða skipulagður með tilteknum reglum sem lýsa því hvernig einstaklingur eða hópur á að hegða sér í dægradvöl. Stundum þegar talað er um leiki, þá er gæti verið að tala um spil, svo sem kortaspil eða borðspil, eða jafnvel tölvuleiki.
Óskipulagður leikur
[breyta | breyta frumkóða]Börn, fullorðnir og dýr stytta sér oft stundir með því að leika sér á óskipulagðan hátt. Hægt er að leika sér með bolta, bíla og önnnur leikföng, og stundum án allra hjálpartækja.
Skipulagður leikur
[breyta | breyta frumkóða]Ýmsir leikir, svo sem útileikir á við brennó og snú snú, eru afmarkaðir af tilteknum reglum, sem segja til um það hvernig einstaklingarnir sem taka þátt í leiknum mega haga sér, og stundum einnig um það hver vinnur eða tapar. Það er ekki óalgengt að vinsælir leikir sem hafa skýrar reglur séu teknir upp sem keppnisíþróttir þar sem fólk heldur mót og keppnir til að sýna hæfni sína í þeim leik; það á einnig við spil.
Frjáls leikur
[breyta | breyta frumkóða]Þegar verið um er að ræða leiki ungra barna, þá sérstaklega á leikólum, þá er einnig talað um frjálsan leik. Þá fá börnin að leika sér sjálft eins og því langar til, án afskipta, sem ýtir undir sköpunarkraft þeirra, tjáningu og samskipti.[1][2]
Tölvuleikur
[breyta | breyta frumkóða]Það á við þegar leikið er í tölvu og eru það kallaðir tölvuleikir. Slíka leiki er hægt að spila á bæði borðtölvum og leikjatölvum (en ýmsir leikir eru sérhæfðir fyrir tilteknar gerðir af tölvum). Hægt er að ná í leiki af netinu eða af geisladiskum og sambærilegum gagnageymslum.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ingvar Sigurgeirsson (26. mars 2024). „Frjáls leikur“. skolathraedir.is. Sótt 10. júní 2026.
- ↑ Kristín Dýrfjörð (6. mars 2013). „Frjáls leikur - hvað er það?“. laupur.is. Sótt 10. júní 2026.