Fara í innihald

Breska-Kólumbía

(Endurbeint frá British Columbia)
Breska-Kólumbía
British Columbia
Fáni Bresku-Kólumbíu
Skjaldarmerki Bresku-Kólumbíu
Kjörorð: 
Splendor sine occasu (latína)
(Óskertur ljómi)
Staðsetning Bresku-Kólumbíu
Staðsetning Bresku-Kólumbíu í Kanada
Hnit: 54°30′N 124°30′V / 54.500°N 124.500°V / 54.500; -124.500
Land Kanada
Aðild að ríkjabandalaginu20. júlí 1871; fyrir 155 árum (1871-07-20) (Sjöunda)
HöfuðborgViktoría
Stærsta borgVancouver
Stjórnarfar
  LandstjóriWendy Cocchia
  ForsætisráðherraDavid Eby
Þingmenn
neðri málstofu
43 af 343 (12,5%)
Þingmenn
öldungadeildar
6 af 105 (5,7%)
Flatarmál
  Samtals944.735 km2
  Land925.186 km2
  Vatn19.549 km2  (2,1%)
  Sæti5. sæti
 9,5% af Kanada
Mannfjöldi
 (2021)
  Samtals5.000.879[2]
  Áætlað 
(2026)
5.658.528[3]
  Sæti3. sæti
  Þéttleiki5,29/km2
Tímabelti
Mestallt fylkiðUTC−07:00 (MST)
Suðausturhluti fylkisinsUTC−07:00 (MST)
  SumartímiUTC−06:00 (MDT)
Skammstöfun póstfangs
BC
Póstfangsforskeyti
V
ISO 3166 kóðiCA-BC
Opinber tungumálenska
Vefsíðawww2.gov.bc.ca/gov/content/home Breyta á Wikidata
Sætaröðun miðast við öll fylkin og svæðin.
Helstu þéttbýlisstaðir.
Upphleypt kort af Bresku-Kólumbíu.
Mount Robson í Klettafjöllum.

Breska-Kólumbía (enska: British Columbia) er fylki suðvestast í Kanada. Það var sjötta fylkið til að ganga í fylkjasambandið (sjöunda ef sjálfstjórnarsvæðin eru tekin með). Fjöll og skógar eru áberandi í landslagi fylkisins.

Söguágrip

[breyta | breyta frumkóða]

Á því landsvæði sem nú er Breska-Kólumbía nær saga frumbyggja yfir a.m.k. 10.000 ár. Evrópskir landkönnuðir fóru þar um undir lok 18. aldar, en landnám í stórum stíl hófst á fyrri hluta 19. aldar. Hudson Bay félagið sem verslaði með skinn nefndi svæðið eftir Kólumbíufljóti árið 1858. Árið 1871 varð það 6. hérað Kanada. Lokið var við síðasta legg Kyrrahafslestarinnar (Pacific Rail) til Vancouver árið 1885 og með tilkomu hennar urðu efnahagslegar framfarir. Skógarhögg varð æ mikilvægari grein.

Landafræði og náttúrufar

[breyta | breyta frumkóða]

Breska-Kólumbía er 944,735 km2 að flatarmáli. Fylkið á landamæri að Alberta í austri, Júkon, Norðvesturhéruðunum og bandaríska fylkinu Alaska í norðri og bandarísku fylkjunum Washington, Idaho og Montana í suðri.

Þrír fjórðu hlutar fylkisins eru fjalllendi í yfir 1000 metra hæð, þar á meðal Klettafjöll í austri, Strandfjöll í vestri og Fossafjöll í suðri. Hæsta fjallið er Mount Fairweather, nálægt landamærum Alaska, 4.663 metrar yfir sjávarmáli. Í miðju fylkinu er háslétta þar sem rignir lítið, hún er fremur gróðursnauð og telst að hluta eyðimörk. Hins vegar er vesturhluti Vancouvereyju úrkomusamasti staður Norður-Ameríku. Ströndin er mjög vogskorin og með mörgum fjörðum og eyjum. Stærstu eyjarnar fyrir utan Vancouvereyju eru í eyjaklasanum Haida Gwaii. Columbia-fljót á upptök sín í fylkinu og rennur til Kyrrahafsstrandar Bandaríkjanna.

Um 60% fylkisins eru skógi vaxin. Finna má mörg hundruð ára gömul tré af tegundum eins og risalífviði, marþöll, degli og sitkagreni í tempruðu regnskógunum við vesturströndina. Mikið er af blágreni, hvítgreni og fjallaþini inni í landi. Aðeins um 5% svæði fylkisins eru hentug til ræktunar.

Mörg vernduð svæði og þjóðgarðar eru innan Bresku-Kólumbíu. 12,5% fylkisins eru verndað land. Meðal þjóðgarða eru Glacier-þjóðgarðurinn, Kootenay-þjóðgarðurinn, Yoho-þjóðgarðurinn, Pacific Rim-þjóðgarðurinn og Mount Revelstoke-þjóðgarðurinn.

Sumarið 2021 mældist hæsti hiti í Kanada í þorpinu Lytton í fylkinu eða tæpar 50 gráður.

Fólksfjöldi í fylkinu var um 5,65 milljónir árið 2026.[3] Vancouver er stærsta borg fylkisins og þriðja stærsta borg Kanada. Borgin Viktoría á Vancouvereyju er næststærsta borgin og höfuðborg fylkisins. Stærsta borgin í norðri er Prince George. Flestir íbúa fylkisins búa innan marka Vancouver, Viktoríu og nálægra svæða.

Um 72% vinnandi fólks starfar í þjónustugeiranum. Ferðaþjónusta, skógarhögg og fiskveiðar eru meðal atvinnugreina. Asískir innflytjendur eru um fjórðungur íbúa Bresku-Kólumbíu.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Land and freshwater area, by province and territory“. Statistics Canada. 7 október 2016. Sótt 3. september 2026.
  2. „Population and dwelling counts: Canada, provinces and territories“. Statistics Canada. Sótt 3. september 2026.
  3. 1 2 „Population estimates, quarterly“. Statistics Canada. 17 júní 2026. Sótt 3. september 2026.

Fyrirmynd greinarinnar var „British Columbia“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 21. nóv. 2016.